Laugardaginn 27. júní kl. 15:00 opnar myndlistarsýningin Sleppa í listsalnum hAughús í Héraðsdal í Skagafirði. Sýningin stendur til sunnudagsins 9. ágúst og verður opin föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 13:00–18:00.
Sleppa er samsýning fjórtán myndlistarmanna sem mynda sjö mæðgnapör; Aðalheiður Eysteinsdóttir og Brák Jónsdóttir, Borghildur Óskarsdóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir, Áslaug Thorlacius og Helga Finnsdóttir, Inga Sigga Ragnarsdóttir og Katrín Agnes Ingudóttir Klar, Margrét Stefánsdóttir og Lára Margrétardóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir og Ragnhildur Lára Weisshappel og Rósa Gísladóttir og Þorgerður Þórhallsdóttir.
Sýningin er unnin á vegum Akademíu Skynjunarinnar í samstarfi við Listasjóð Dungal og markar upphaf áframhaldandi sumarsýninga í hAughúsi, nýju sýningarrými sem hefur verið þróað úr gömlu haughúsi í Héraðsdal. Fyrsta sýning rýmisins, Vor Verk, var opnuð sumarið 2025.
Titillinn Sleppa vísar til þess að sleppa takinu, gefa eftir og leyfa hlutunum að þróast á eigin forsendum. Á sýningunni er sjónum beint að innri ferlum, mannlegum tengslum og sköpunarferli listamannsins, þar sem kannað er hvaða umbreytandi afl felst í því að hætta að halda fast.
Á sýningunni mætast verk mæðgna úr ólíkum kynslóðum og varpa þau ljósi á áhrif, samfellu og mismun í listrænni nálgun innan fjölskyldutengsla. Með þessari samsetningu er leitast við að skoða hvernig togstreita ótta og ástar, festu og frelsis birtist innan mæðgnasambandsins og hvernig reynsla og sköpun flyst milli kynslóða.
Sleppa byggir á rannsókn á hugtakinu eftirgjöf og er mæðgnaþemað notað sem rammi til að varpa ljósi á hið víða og margbrotna efni sýningarinnar. Um leið undirstrikar sýningin mikilvægi áframhaldandi umfjöllunar um konur í myndlist og skapar vettvang fyrir samtal milli kynslóða listakvenna.
Aðstandendur sýningarinnar segja viðtökur þátttakenda hafa verið einstaklega jákvæðar og að verkefnið hafi þróast út frá áhuga á nýjum leiðum í sýningarhaldi og samstarfi.
Listasjóður Dungal var stofnaður árið 1992 af Gunnari B. Dungal í minningu foreldra sinna, Margrétar og Baldvins P. Dungal. Sjóðurinn hefur um árabil stutt við íslenska myndlist og útgáfu listaverkabóka.
Sjá viðburð hér: https://www.facebook.com/share/1BCKKY2iDf/?mibextid=wwXIfr